Jæja þá
er maður kominn heim eftir 3ja vikna sólar/sælu dvöl á
Lanzarote 
Þetta var æðislegt í alla staði ..
við gerðum hellings þarna úti t.d
* Fór í
sjóinn ( ég er ein sú sjó og fiska hræddasta í heimi
... en lét það ekki aftra mér með svona tærann sjó
)
* fórum til
Fuenaventura (sem er eyjan sem Edda systir og Anna
Margrét og co voru á )
* fór í kafbát sem fór á
30 metra dýpi (hélt að ég yrði skíthrædd og mundi ekki
þora aftur í sjóinn eftir að sjá alla fiskana .. en jú jú ... þetta
voru allt svo flottir fiskar þarna
)
* Fór í
vatnsrennibrautagarða .. einn á Lanza og einn á
fuenaventura ... geggjað .. ég var eins og lítið barn þar he he (
hef aldrei farið í vatnsrennibrautargarð áður )
* lágum eins og skötur á
sunlaugar bakkanum við hótelið
* Sá fullt af
kakkalökkum ... og ég var skíthrædd við þá ... var
alltaf í sokkum og lokuðum skóm á kvöldin
og átti margar
svefnlausar nætu að völdum hræðslu að þeir væru uppí rúmmi .. (það
voru nokkrir Íslendinar á hótelin sem fengu þá inn til sín

* Sá fullt að eðlum þarna
á reiki
* Hef aldrei séð eins
mikið að hvítum húsum ... (það eru öll húsin þarna
hvít .... það var arkitekt sem var mikill maður þarna úti .. og
þegar hann dó ... var það sett í reglur að öll hús ættu að vera
hvít ... en fólk mætti velja hvort að dyr og gluggakarmar
væru grænir, bláir eða brúnir
* Ægir og Aldís fóru í
köfun ... ( ég þorði því ekki
)
* Borðaði
endalaust ( sem er bara að koma niður á mér ...
)
* Rölltum mikið í
bænum
* Leigðum bílaleigubíl í
2 daga og keyrðum hellings um
* Fór á úlvalda
bak ... sem er eitt af eftirminnalegusu stund
ferðarinnar þar sem hann Ægir minn ætlaði að vera svo mikill nagli
að þykjast kyssa úlvaldann þá snýr úlvaldinn sér að honum með sínum ljótu hljóðum og
reynir að bíta hann .... og ég sver það ég hef aldrei
séð mann detta og spóla sig upp og hlaupa í burtu svona hratt
he he ég og Halla við hlógum svo mikið að við fengum
harðsperrur í magann hihih Ægir allur skrámaður á fætinum
hihih 
* Fórum vegabréfs laus
heim .... þegar við tjékkuðum okkur inn á hótelið tók
lobbí konan vegabréfin okkar ... svo þegar rútan kom að ná í okkur
kl 5:30 um morguninn og ég ætlaði að ná í þau .. var bara einhver
næturvörður EKKI ENSKU TALANDI að vinna þarna á HÓTELINU og gat
ekki opnað skrifstofuna ... en það reddaðist allt saman við notum
bara skilríkin okkar
* Millilentum á
kanarí .... velin var að taka bensín .... þar þurftum
við að dúsa í klukkutíma í sætunum okkar ... með sætin uppi ..
borðið uppi .. ekki hlusta á iPot eða horfa á tölvuna ... og ekki
vera með sætisbeltin spennt ... og því tók flugferðin í heildina 6
tíma í stað 5 tíma eins og á leiðinni út (sem er nógu langt flug
!!! )
* Sváfum á glerhörðum
rúmmum ... með ljósin kveikt vegna kakkalakka hræðslu
hjá mér 
* Var svoooo
gripinn við að ljúga !!!!!
... Ægir keypti sér 2
boli í íþróttabúðinni þarna .... svo þegar við komum heim var annar
bolurinn vitlaus ... þannig að ég fór að skipta honum 2 dögum
seinna ... ég fann ekki kvittunina ... en allavaega sagði
afgreiðslumaðurinn að hann gæti ekki skipt nema að ég væri með
kvittun ... en að ég gæti komið í fyrramálið og þá væri
yfirmaðurinn við ... ég sagðist ekki geta það því ég væri að fara
heim í fyrramálið .... og hann spyr kl hvað ... og ég segi 8 ... og
þá segir hann NEIII þú ert frá Íslandi og þið farið ekki á morgun
heldur hinn (það er alltaf flogið á þriðjudögum ) ég gat ekkert
sagt nema Halla náðu í byssu og skjóttu mig !!! 
Shit hvað
ég var gripinn við að ljúga ... og það er ömurlegt he he
En jæja ég held að ég láti þetta
duga í bili he he ... en svona í stuttu máli var þetta geggjuð ferð


Adios senjoritas and senjors
